ISEN
Composite Solutions
Starfsmenn ELV leggja upp mót á verkstæðinu
Fyrirtækið

Um okkur

ELV ehf er verktakafyrirtæki í Þorlákshöfn. Sérgreinin okkar er trefjaplast og við sérhæfum okkur í að vinna með efni sem endast áratugum saman.

Við framleiðum vörur fyrir fiskeldi eins og brýr yfir eldisker, miðjustúta, rör og tanka, ásamt ýmsu öðru. Við hönnum og smíðum palla, stiga og gólf úr trefjaplastprófílum. Við erum einnig í bátasmíði ásamt breytingum og viðgerðum á bátum. Við tökum líka að okkur almenna verktakavinnu og smíðum úr járni, ryðfríu stáli og timbri.

Reynslan

Ómar Níelsson framkvæmdastjóri er trésmiður að grunni og hefur unnið í trefjaplasti frá 1993, með réttindi til að hanna og smíða báta allt að 15 metrum. Trésmíðin hefur fylgt plastinu allan tímann — mótasmíði er í eðli sínu trésmíði, og það er ástæðan fyrir því að mótin verða til hjá okkur en ekki annars staðar.

Hjá fyrirtækinu starfa verkefnastjórar, bátasmiður, trésmiðir, rafvirki og vélvirki, auk verkamanna með sérhæfða reynslu í trefjaplasti og smíði.

Landeldið

Landeldi hefur vaxið jafnt og þétt og er orðið stærsti hluti starfseminnar. Við tökum virkan þátt í hönnun með viðskiptavinum okkar og höfum framleitt göngubrýr um 30 metra langar án miðjustuðnings. Við höfum smíðað miðjustúta, rör og tengistykki til fiskflutnings og þekkjum kröfurnar sem fylgja flutningi á lifandi fiski milli staða.

Við komum að burðarþolshönnun varanna og fáum útreikningana frá verkfræðistofu sem við vinnum með. Mótin hönnum við og smíðum sjálf innanhús. Í stærstu verkefnunum eru mótin færanleg — einingamót sem komast í gáma, svo brú allt að 35 metrum má smíða nálægt byggingarstað hvar sem er í heiminum.

Pallar, stigar og gólf

Við höfum sérhæft okkur í hönnun og smíði á pöllum, stigum og gólfum úr trefjaplastprófílum. Við hönnum burðarvirkið í samstarfi við verkkaupa og framleiðanda prófílanna, smíðum sérlausnir og setjum pallakerfið upp — allt frá stökum stiga upp í heil gólf og pallakerfi.

Bátar og skip

Bátar hafa fylgt okkur allan tímann — nýsmíði, breytingar, lengingar og viðhald. Í stærri bátum vinnum við með Skipasmíðastöð Njarðvíkur, þar sem aðstaðan er fyrir slipptöku og stærri skrokka.

Hafa samband

Við leysum málin

Sími
Netfang
ELV ehf
Hafnarskeið 6, 815 Þorlákshöfn
Kt. 680616-1670 · VSK nr. 125660